Gagnvirkar lestrarsögur fyrir krakka
Í hverri sögu velur lesandinn sjálfur hvað gerist næst. Stuttur texti á hverri síðu, margar leiðir og mörg endalok – lestraræfing sem er eins og leikur.

Þrjú skref
Sögurnar eru misþungar, svo allir geta fundið sögu við sitt hæfi.
Þú lest stuttan texta og velur svo hvað gerist næst.
Hver saga getur endað á marga vegu. Flest endalokin eru góð – en ekki alveg öll!
Prófaðu hér
Svona virkar hver síða í sögunum: þú lest textann og velur svo leið. Sagan endar á 6 mismunandi vegu. Finnur þú alla endana?
Þú gengur eftir stígnum og kemur að vegamótum.
Til vinstri sérðu kastala. Til hægri er lítill kofi uppi í fjöllunum.
Hvert viltu fara?
Fyrir foreldra og kennara
Leikjasaga er hugsuð fyrir krakka sem eru að læra að lesa, heima og í skólanum.
Þegar lesandinn stjórnar framvindu sögunnar verður lesturinn að leik.
Fáar línur í einu og mynd með. Þægilegt fyrir þá sem eru að ná tökum á lestri.
Sögurnar eru misþungar og henta bæði byrjendum og þeim sem eru lengra komnir.
Vefurinn sýnir hve marga enda lesandinn hefur fundið, svo það er alltaf ástæða til að lesa söguna aftur.
Vefurinn man hvar lesandinn var staddur, svo auðvelt er að halda áfram næst.
Gagnvirkur lestur er þekkt söguaðferð og fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á gagnsemi hennar við lestrarkennslu.
Leikjasaga er samvinnuverkefni forritara og málfræðinga sem hafa brennandi ástríðu fyrir lestrarkennslu. Sömu höfundar standa að baki lestrarkennsluvefnum 100ord.is.
Skráðu þig á póstlista og fáðu tölvupóst um nýjar viðbætur og uppfærslur.